![]() |
||
![]() |
|
|
|
|
Ræktunin okkar er frekar
lítil og ný, en stefnum að því að rækta
heilbrigða, skapgóða,fallega og vinnuglaða þýska
fjárhunda og að
Það stóð
ekkert annað til, en að finna okkur fallega tík, sem mundi
standast okkar kröfur, heilbrigð og skapgóð.
Fyrsta gotið okkar
kom í heiminn 19 mars 2007, en í því goti fengum
við eina tík og tvo rakka. Kolgrímu Blaze Hólm fæddist
í
29 desember 2007 og kemur hún úr 7 hvolpa goti ,
sem saman stendur af fallegum og geðgóðum hundum. Með henni
hef ég náð góðum árangri í vinnu , og til
að mynda erum við með hæst skoraða stig í Hlýðni Brons . Sigurganga mín og
Blaze liggur ekki bara í vinnu en okkur er búin að ganga vel saman á
ræktunar sýningum. Blaze hefur akkurat þann vinnueiginleika sem ég vill
sjá í Schafer.. Walincha´s Yasko kom til okkar árið 2010. Yasko hefur
frábæra og eftirsótta ættartölu og er hann án efa góð viðbót í okkar ræktun.
Yasko og ég höfum líka lagt ómetanlega vinnu í hlýðni og spor , skemmt okkur
vel á sýningum , sem og hefur hann verið mér, eins og hinir sannur vinur. Ágúst 2011 varð Yakso Íslenskur meistari og annar
besti hundur sýningar , hann átti líka besta afkvæmahóp sýningar (
sunnudagur) og besta hvolp sýningar 6-9 mánaða, svo sannarlega Yasko dagur
það !
Í gegnum tíðina höfum við fengið ómælda hjálp frá góðu fólki, ræktanda ,
fjölskyldu og vinum. Enn og aftur fengum við nákvæmlega það sem við vildum.
Góða , heilbrigða og vinnuglaða schafer hunda.
Hundarnir eru okkar áhugamál og lífstíll og fer allur okkar frítími að hugsa
um þá og er sá tími okkur mikið gleðiefni.
|
|
|
|
||